Lög félagsins

1. gr.
Nafn félagsins er Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna

2.gr.
Heimili þess og varnarþing er hjá formanni hverju sinni.

3.gr.
Markmið samtakanna eru...
a) að vera samstarfsvettvangur forstöðumanna almenningsbókasafna
b) að koma sameiginlega fram í málefnum sem varða almenningsbókasöfn á Íslandi
c) að fjalla um þau mál sem snerta starfssvið almenningsbókasafna
d) að fylgjast með lagasetningum og nýjungum á sviði almenningsbókasafna.
e) að standa fyrir fræðslu, námskeiðum og ráðstefnum um málefni almenningsbókasafna.
f) að stuðla að opinberri umræðu um almenningsbókasöfn
g) að vinna að þróun og eflingu almenningsbókasafna á Íslandi.
h) að eiga samstarf við félög forstöðumanna almenningsbókasafna erlendis.

4. gr.
Félagsmenn geta þeir orðið sem veita almenningsbókasöfnum forstöðu og starfa hjá sveitarfélagi  sem hefur skipulagða bókasafnsþjónustu. Auk þess geta safnstjórar útibúa frá almenningssöfnum og forstöðumaður Blindrabókasafnsins og Bókasafns Norræna hússins gerst fullgildir félagar.
Með aðild að samtökunum fylgir eitt atkvæði. Forstöðumanni eða safnstjóra er heimilt að senda staðgengil sinn á aðalfund samtakanna og fylgir þá atkvæðisrétturinn honum.
Úrsögn úr samtökunum tekur gildi á næsta aðalfundi. Ef árgjöld eru ekki greidd tvö ár í röð jafngildir það úrsögn.
Hætti félagi aðild eða sæti brottvikningu á hann ekki kröfu á hendur samtökunum.

5. gr.
Almennir félagsfundir skulu haldnir tvisvar á ári, vor og haust, til skiptis hjá félagsmönnum.

6. gr.
Æðsta vald samtakanna er í höndum aðalfundar. Aðalfund skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert, samhliða vorfundi. Til hans skal boðað bréflega með minnst 30 daga fyrirvara.

Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Skýrsla formanns.
2. Reikningsuppgjör s.l. árs.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning formanns, tveggja aðalmanna í stjórn og eins varamanns.
5. Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs.
6. Fjárhagsáætlun og ákvörðun um félagsgjöld.
7. Önnur mál.

Aukaaðalfund má halda að beiðni stjórnar eða 1/3 hluta félagsmanna.
Aðalfundir og aukaaðalfundir eru löglegir ef löglega er til þeirra boðað.

7. gr.
Stjórn Samtaka forstöðumanna skal skipuð þremur mönnum og einum varamanni kjörnum til eins árs í senn. Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum þannig að annar þeirra er varaformaður og ritari en hinn gjaldkerfi. Ef einn stjórnarmanna hættir skal varamaður taka sæti hans fram að næsta aðalfundi.
Stjórn samtakanna stýrir öllum málefnum samtakanna milli aðalfunda, sér um að framfylgja markmiðum samtakanna (sbr. 3.gr.) og kemur fram fyrir hönd þeirra.

8. gr.
Formaður boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist stjórnarfundar og skal formaður boða til hans innan viku frá því beiðnin kemur fram.

9. gr.
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn fyrir 1. mars og sendar félögum til kynningar með aðalfundarboði.
Lagabreytingar þarf að samþykkja með 3/4 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi eða aukaaðalfundi.

10. gr.
Samtökunum má slíta ef 2/3 fullgildra félaga samþykkja það á aðalfundi eða aukaaðalfundi og þá renna eignir samtakanna til Upplýsingar : félags bókasafns- og upplýsingafræða.

11. gr.
Lög þessi öðlast gildi 12. maí 2011.