Merkið

Á vorfundi forstöðumanna almenningsbókasafna 1993  sem haldinn var í Vestmannaeyjum var skipaður starfshópur um merki fyrir íslensk alemnningsbókasöfn. Starfshópurinn kynnti  niðurstöður sinar á haustfundi í Grindavík sama ár og í framhaldi af því var ákveðið að láta teikna nýtt merki fyrir söfnin. Einnig var ákveðið að vinna samhliða að vegskilti í samvinnu við Vegagerðina.  Það var svo á Landsfundi bókavarða í Munaðarnesi í september 1995 að merkið var kynnt og samþykkt. Jón Ágúst Pálmason hannaði það og lýtur vegskiltið reglum Vegagerðarinnar um útlit en litirnir í litaútgáfu merksins eru táknrænir fyrir hina gömlu og virðulegu leðurinnbundnu bók  til lífs- og litagleði ungviðisins.

Öllum bókasöfnum á Íslandi er heimilt að nota merkið.

Um notkun vegskiltisins gilda reglur Vegagerðarinnar.