Núll núll 9 eftir Þorgrím Þráinsson og Stórskemmtilega stelpubókin vinsælastar.
Borgarbókasafn veitir verðlaunin árlega fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina þýdda. Börn á aldrinum 6-12 ára velja bækurnar og fer valið fram í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Að þessu sinni tóku um fimm þúsund börn þátt í kosningunni og var þetta í níunda sinn sem verðlaunin eru veitt. María Þórðardóttir leikkona afhenti verðlaunin fyrir hönd safnsins, en þau hlutu Þorgrímur Þráinsson fyrir bókina Núll núll 9 og Halla Sverrisdóttir fyrir þýðingu sína á Stórskemmtilegu stelpubókinni. Báðar eru þær gefnar út af Forlaginu.