Vorfundur SFA á Dalvík tókst í alla staði vel og öll aðstaða var til fyrirmyndar. Menningarhúsið Berg er stórglæsilegt og mjög gott ráðstefnuhús. Veitingarnar á kaffihúsinu voru gómsætar. Aðstaðan og maturinn á hótelinu var eins og best verður á kostið. Fyrirlestrar og erindi voru öll fróðleg og skemmtileg og forstöðumenn fóru heim að vanda uppfullir af eldmóði og strax farnir að hlakka til næsta fundar.