Vorfundur 2010

Vorfundur SFA 2010 var haldinn í Northern Light Inn við Grindavík. Fundurinn tókst vel í alla staði, dagskráin fjölbreytt og aðstaðan öll til fyrirmyndar. Eyþór Eðvarðsson fræddi okkur um stjórnun á krísu- og breytingatímum og stjórnaði vinnustofu, Óskar Þór sagði okkur frá þjónustugátt Fjarðarbyggðar á bókasöfnunum, Marta Hildur sagði frá stöðu mála í kynningarmálum, Anna og Óskar frá undirbúningi fyrir námskeið um almenningsbókasöfn í bókasafns- og upplýsingafræði við HÍ og svo hlustuðum við saman á fyrirlestur um framtíð almenningsbókasafna á Netinu "From libraries to lifebraries"  og ræddum saman um hann á eftir.  27 félagar voru mættir. Á aðalfundi SFA var samþykkt hækkun á árgjaldi í kr. 7.500 og stjórn samtakanna endurkjörin.